Arnarstapi

Ósk
Séð

Arnarstapi eða Stapi er lítið þorp eða þéttbýli á sunnanverðu Snæfellsnesi. Það er undir Stapafelli, á milli Hellna og Breiðuvíkur.
Frá árinu 1565 sátu umboðsmenn konungs, sem höfðu á leigu jarðir þær sem Helgafellsklaustur hafði átt, á Arnarstapa og kallaðist umboðið Stapaumboð. Þeir voru oft jafnframt sýslumenn eða lögmenn og á 19. öld sátu amtmenn Vesturamtsins einnig á Stapa. Þar hafa ýmsir þekktir menn verið um lengri eða skemmri tíma. Fatlaða skáldið Guðmundur Bergþórsson átti þar heima á 17. og 18. öld. Bjarni Thorsteinsson amtmaður var þar 1821-1849 og þar ólst sonur hans, þjóðskáldið Steingrímur Thorsteinsson, upp.

Steinkarlinn Bárður Snæfellsás.
Gamla Amtmannshúsið á Arnarstapa (Stapahúsið) var reist þar á árunum 1774-1787 og er því eitt af elstu húsum á Íslandi. Árið 1849 var það tekið niður og flutt að Vogi á Mýrum, þar sem það var til 1983. Það var reist aftur á Arnarstapa 1985-1986 og friðað árið 1990.
Lendingin á Arnarstapa var talin ein sú besta undir Jökli og var þar fyrrum kaupstaður, á tíma einokunarverslunarinnar og allt til ársins 1821, og mikið útræði frá því snemma á öldum. Þar er smábátahöfn sem var endurbætt 2002. Hún er nú eina höfnin á sunnanverðu Snæfellsnesi og þaðan eru gerðir út allmargir dagróðrabátar á sumrin. Á Arnarstapa er einnig nokkur sumarhúsabyggð og mikið er þar um ferðamenn, einkum á sumrin. Þar er veitingahús og ýmiss konar ferðaþjónusta.
Mikil náttúrufegurð er í grennd við Arnarstapa. Ströndin milli Stapa og Hellna var gerð að friðlandi 1979, en hún þykir sérkennileg og fögur á að líta. Vestur með henni er Gatklettur og þrjár gjár, Hundagjá, Miðgjá og Músagjá, sem sjávarföll hafa holað inn í bergið. Op eru í þaki þeirra nokkuð frá bjargbrún, hvar sjór gýs upp og brimsúlur þeytast hátt í loft upp og talið ólendandi í Arnarstapa þegar Músagjá gýs sjó. Vinsæl gönguleið á milli Arnarstapa og Hellna er að hluta gömul reiðgata á milli þessara staða.
Á Arnarstapa er steinkarl mikill, sem Ragnar Kjartansson myndhöggvari hlóð, og heitir hann Bárður Snæfellsás. Margir hafa einmitt trú á því að Bárður vaki yfir svæðinu undir Jökli.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Vesturland

10,666 skoðað

Arnarstapi er lítið þorp á Snæfellsnesi.

Arnarstapi
Fimmtudagur
10:00
0.3°c
9.9 N
Fimmtudagur
11:00
0.3°c
10.6 N
Fimmtudagur
12:00
0.5°c
11.0 N
Fimmtudagur
13:00
0.7°c
10.9 N
Fimmtudagur
14:00
0.7°c
11.0 N
Fimmtudagur
15:00
0.6°c
11.0 N
Fimmtudagur
16:00
0.5°c
11.0 N
Fimmtudagur
17:00
0.4°c
10.8 N
Fimmtudagur
18:00
0.4°c
10.4 N
Fimmtudagur
19:00
0.3°c
10.0 N
Fimmtudagur
20:00
0.2°c
10.0 N
Fimmtudagur
21:00
0.2°c
9.9 N
Fimmtudagur
22:00
0.2°c
9.9 N
Fimmtudagur
23:00
0.2°c
9.7 N
Föstudagur
0:00
0.1°c
9.3 N
Föstudagur
1:00
0.1°c
9.2 N
Föstudagur
2:00
-0.1°c
9.0 N
Föstudagur
3:00
-0.1°c
9.0 N
Föstudagur
4:00
0°c
9.1 N
Föstudagur
5:00
-0.1°c
8.9 N
Föstudagur
6:00
0°c
8.9 N
Föstudagur
7:00
-0.1°c
8.6 N
Föstudagur
8:00
-0.2°c
8.2 N
Föstudagur
9:00
-0.4°c
7.4 N
Föstudagur
10:00
-0.5°c
6.8 N
Föstudagur
11:00
-0.7°c
6.9 N
Föstudagur
12:00
-0.6°c
7.5 N
Föstudagur
13:00
-0.6°c
8.0 N
Föstudagur
14:00
-0.4°c
8.2 N
Föstudagur
15:00
-0.5°c
7.9 N
Föstudagur
16:00
-0.7°c
7.5 N
Föstudagur
17:00
-0.6°c
7.0 N
Föstudagur
18:00
-0.5°c
6.6 N
Föstudagur
19:00
-0.2°c
6.7 N
Föstudagur
20:00
-0.1°c
6.8 N
Föstudagur
21:00
-0.3°c
6.7 N
Föstudagur
22:00
-0.6°c
6.2 N
Föstudagur
23:00
-0.6°c
5.7 N
Laugardagur
0:00
-0.2°c
5.2 N
Laugardagur
1:00
0.2°c
4.8 N
Laugardagur
2:00
0.4°c
4.7 N
Laugardagur
3:00
0°c
4.6 N
Laugardagur
4:00
-0.3°c
4.7 N
Laugardagur
5:00
-0.7°c
4.7 N
Laugardagur
6:00
-0.7°c
4.9 NE
Laugardagur
7:00
-0.6°c
5.2 NE
Laugardagur
8:00
-0.6°c
5.3 NE
Laugardagur
9:00
-0.8°c
5.9 E
Laugardagur
10:00
-0.7°c
6.9 E
Laugardagur
11:00
-0.6°c
7.7 E
Laugardagur
12:00
-0.1°c
7.3 E
Laugardagur
13:00
1.3°c
7.4 E
Laugardagur
14:00
2°c
7.8 E
Laugardagur
15:00
2.6°c
9.4 SE
Laugardagur
16:00
3.5°c
11.4 SE
Laugardagur
17:00
3.7°c
13.1 SE
Laugardagur
18:00
3.7°c
13.4 SE
Laugardagur
19:00
3.5°c
13.0 SE
Laugardagur
20:00
2.7°c
11.8 SE
Laugardagur
21:00
3.9°c
14.4 SE
Laugardagur
22:00
4.1°c
14.8 SE
Laugardagur
23:00
4°c
14.5 SE
Sunnudagur
0:00
4.2°c
14.6 SE
Sunnudagur
6:00
5°c
12.5 SE
Sunnudagur
12:00
4.6°c
11.1 SE
Sunnudagur
18:00
3.5°c
7.9 SE
Mánudagur
0:00
3.9°c
3.2 E
Mánudagur
6:00
2.7°c
1.4 S
Mánudagur
12:00
2.1°c
4.4 SE
Mánudagur
18:00
1.8°c
2.7 S
Þriðjudagur
0:00
1.4°c
5.2 E
Þriðjudagur
6:00
2.2°c
6.3 SE
Þriðjudagur
12:00
2.2°c
5.0 E
Þriðjudagur
18:00
3.2°c
5.0 E
Miðvikudagur
0:00
4.2°c
4.5 E
Miðvikudagur
6:00
3.7°c
3.0 E
Miðvikudagur
12:00
1.4°c
2.4 N
Miðvikudagur
18:00
1.6°c
2.2 N
Fimmtudagur
0:00
1.1°c
2.0 N
Fimmtudagur
6:00
0.5°c
1.0 N
Fimmtudagur
12:00
-1.8°c
1.2 N
Fimmtudagur
18:00
-2.1°c
1.4 E
Föstudagur
0:00
-0.1°c
3.1 E
Föstudagur
6:00
2.1°c
4.0 NE
Föstudagur
12:00
3.6°c
5.9 E
Föstudagur
18:00
3°c
1.9 W
Laugardagur
0:00
2.7°c
0.6 W
Laugardagur
6:00
1.9°c
1.7 S

Arnarstapi

Svæðið býður upp á stórbrotið landslag.

Algengar spurningar

Hvar er Arnarstapi?
Arnarstapi er á Snæfellsnesi, við rætur Stapafells.
Hvað einkennir Arnarstapa?
Staðurinn er þekktur fyrir kletta, fuglalíf og gönguleiðir.
Er Arnarstapi vinsæll ferðamannastaður?
Já, Arnarstapi er mjög vinsæll á Snæfellsnesi.
Eru gönguleiðir frá Arnarstapa?
Já, vinsæl gönguleið liggur til Hellna.
Er þjónusta fyrir ferðamenn á Arnarstapa?
Já, þar er gisting og veitingaþjónusta.
Er Arnarstapi nálægt Snæfellsjökli?
Já, hann er í nágrenni þjóðgarðsins.


Staðir nálægt mér

© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com

Vefsíðan notast við kökur