Höfði er hús í Borgartúni í Reykjavík byggt 1909, Franski konsúllinn Jean-Paul Brillouin átti upprunalega aðsetur þar.
Íslandsfundurinn á milli Ronalds Reagan og Mikhaíls Gorbatsjev átti sér stað þar 1986. Fáni Bandaríkjanna og fáni Sovétríkjanna hanga þar til minnis um fundinn.
Í ágúst 1991 komu utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna til fundar í Höfða, en þá var sjálfstæðisbarátta ríkjanna á loka stigi. Hittust þeir í Höfða ásamt Jóni Baldvin Hannibalssyni, þáverandi utanríkisráðherra og Davíð Oddssyni, þáverandi forsætisráðherra. Á þessum fundi í Höfða viðurkenndu Íslendingar sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna fyrstir allra þjóða.
Mynd: Anton Stefánsson