Laugarvatnshellar eru manngerðir móbergshellar í Reyðarbarmi á Laugarvatnsvöllum, miðja leið milli Þingvalla og Laugarvatns. Hellarnir voru tveir, annar fjögurra metra breiður og 12 metra langur, en hinn álíka langur en mjórri. Hefur skilrúm milli þeirra nú hrunið niður. Hellarnir eru þekktir fyrir að það var búið í þeim í byrjun 20. aldar. Á fyrri öldum voru þeir notaðir sem sæluhús. Mikið er um veggjakrot í móberginu á hellisveggjum og utan við hellismunnana, nöfn, fangamörk, ártöl, bílnúmer o.fl. Ungmennafélagið Laugdælir hefur í samvinnu við Vegagerðina reist upplýsingaskilti við hellana, þar sem saga þeirra er tíunduð.
Heimild: Sjá hér
Eigandi: Sverrir - Flickr
Eigandi: Anton Stefánsson
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com